Grálist verður með samsýningu í sal Myndlistafélagsins, Boxinu, 3.-25. júlí. Þetta er samsýning 10 myndlistamanna í Grálist sem sýna allir ný verk á sýningunni. Opnunin er laugardaginn 3. júlí kl.14-17 og allir velkomnir.
Opið laugardaga og sunnudaga kl.14-17.
www.gralist.wordpress.com
30.6.10
Heimur hafsins
Og ekkert slor! Nokkrar myndir eru til sýnis í fiskbúðinni Heimi hafsins. Þær hafa verið þar í vetur og veitt fisksalanum síkáta ómælda ánægju. Þar má sjá olíumálverk af harðfiski, gotu og fiskisúpu. Myndirnar verða áfram um óákveðinn tíma í Heimi hafsins og er ég mjög stolt yfir því að fá að sýna olíumálverk í fiskbúð. Hér má sjá úrvalið hjá fisksalanum á netinu: http://heimurhafsins.blog.is/blog/heimurhafsins/
24.8.09
Akureyrarvaka á DaLí
Á Akureyrarvöku verður líflegt á DaLí Gallery og á vinnustofu DaLí. Það er opið gestum Akureyrarvöku kl. 14-17 og svo aftur um kvöldið frá kl.20-00. Dagskrá Akureyrarvöku á DaLí: Edda Þórey Kristfinnsdóttir og sýning hennar Vistaskipti. Síðustu forvöð og lokadagur sýningarinnar.Steinn Kristjánsson verður með málverkasýningu í litla galleríinu KOM INN sem er litla rýmið á vinnustofu DaLí.
DaLíurnar, Dagrún og Lína pakka inn saumavél á súrrealíska vísu og verður heitt kakó í boði fyrir gesti gallerísins og sköpunarveggur þar sem má tjá sig á listrænan hátt.
Allir velkomnir.
28.7.09
Sex saman í Deiglunni á Listasumri
Sex sýna" er samsýning sex myndlistamanna. Þrjár konur og þrír karlar; Ása Ólafsdóttir, Dagrún Matthíasdóttir, Sigurlín M. Grétarsdóttir, Margeir Dire Sigurðsson, Ólafur Sveinsson og Trausti Dagsson opna saman myndlistasýninguna "Sex saman" í Deiglunni á Akureyri, laugardaginn 1. ágúst kl. 15:00 í tengslum við Listasumar.
Verkin á sýningunni fjalla öll á einhvern hátt um kyn, jafnrétti, kynlæga túlkun eða kynjahlutverk. Listaverkin á sýningunni eru ljósmyndir, skúlptúr, myndband, málverk, innsetning og textaverk.
Sýningin stendur til 16. ágúst og eru allir velkomnir. Opið þriðjudaga til sunnudaga kl.13-17 í Deiglunni í kaupvangsstræti.
Verkin á sýningunni fjalla öll á einhvern hátt um kyn, jafnrétti, kynlæga túlkun eða kynjahlutverk. Listaverkin á sýningunni eru ljósmyndir, skúlptúr, myndband, málverk, innsetning og textaverk.
Sýningin stendur til 16. ágúst og eru allir velkomnir. Opið þriðjudaga til sunnudaga kl.13-17 í Deiglunni í kaupvangsstræti.
8.7.09
TRÉ í DaLí Gallery
21.6.09
SKURN á skúrþakinu
Farfuglinn SKURN sem gerðist staðfugl á Öngulstöðum í fyrra á sýningunni Staðfugl/Farfugl og átti vetrardvöl í garðinum mínum þar á eftir, flaug með vorinu á skúrþakið hjá henni Öllu í næsta húsi. SKURN sómir sér vel þar og ætlar að dveljast þar áfram á þessu fallega gula húsi í Oddagötunni.
Gyðjan Freyja
2.4.09
MATARLIST - Food Art in Startart
Sýningin Matarlist opnar í Startart á Laugarvegi 12 b í Reykjavík 4. apríl kl.15. Þar sýni ég olíumálverk af mat sem hefur verið mér hugleikið myndefni upp á síðkastið. Málverkin eru máluð striga og mdf plötur, bæði 2008 og 2009. Verkin sem máluð voru á síðasta ári eru 90x90 cm og þau nýju sem eru rétt að þorna eru 40X40 cm. Ég hef yndi af því að elda og er alltaf mál að mála. Að vinna með mat í myndlist hefur verið mér hugleikið undanfarið og er ég hér að mála þann mat sem hefur dúkkað upp á borð hjá mér. Í raun er tíðarandin svolítið back to the basic eða sá að hefðbundinn íslenskur matur er mun oftar í matinn og ratar þess vegna í málverkin mín. Maturinn er bara svo fallegur, formin og litirnir heilla mig svo ekki sé minnst á bragðið! Hér má sjá umfjöllun um sýninguna ásamt öðru á Landpóstinum: http://landpostur.is/news/daliur_blomstra_i_borginni/
5.2.09
Kappar og ofurhetjur í GalleríBoxi
Kappar og ofurhetjur opna samsýningu í GalleríBOXI laugardaginn 7. febrúar kl.15. Þetta er samsýning félaga í Myndlistafélaginu og má sjá mjög fjölbreytt listaverk á einskonar móti félagsmanna. Þetta er líka fyrsta skipulagða samsýning Myndlistafélagsins, svo ég gekk stolt með slátrið mitt í BOXið til að sýna það með öllu okkar góða listafólki.
Sýningin stendur til 6. mars og er opinn alla laugardaga og sunnudaga milli kl. 13:00 og 15:00.
Sýningin stendur til 6. mars og er opinn alla laugardaga og sunnudaga milli kl. 13:00 og 15:00.
4.12.08
DaLí Vinnustofa opin 13.-14.desember
Við dalíurnar ætlum að bjóða gestum og gangandi að kíkja við á vinnustofunni okkar um helgina 13.-14. desember, kl.14-17.
Þar má sjá verkin okkar og þiggja heitan sopa og kíkja í leiðinni á kreppuhilluna svokölluðu sem inniheldur myndlist á sanngjörnu verði.
Á DaLí vinnustofu starfa Dagrún og Lína og Inga Björk og Krumma.
Verið velkomin.
7.9.08
Ísbjarnarspor og senn flýgur SKURN
Spor hvítabjarnarins var hægt að rekja frá sjó og upp gilið að Deiglunni á Akureyrarvöku. Sást það glögglega að hann er smekkbjörn því hann staldraði við bæði á Bautanum og hjá Friðriki Fimmta. Hann tók líka listalabbið við Ketilhús, Listasafnið, Deigluna, DaLí og Veggverk með viðkomu hjá Ferðafélagi Akureyrar og hjá Hofi þar sem hann naut gjörnings Önnu Richards. Þetta uppátæki bangsa að spígsora um á menningarvökunni fékk skemmtileg viðbrögð. Börn gerðu sér leik og röktu sporin og spunnu sín eigin ævintýri um hvað hann hafi verið að gera á leið sinni.
SKURN flýgur brátt heim og yfirgefur sveitasæluna á Öngulstöðum. Sýningunni Staðfugl Farfugl í Eyjafjarðarsveit lýkur 15. september.
12.8.08
GRÁLIST - engin smá list
Grálist engin smá list - er yfirskrift samsýningar Grálistahópsins í Deiglunni 16. ágúst kl. 14.14 meðlimir í Grálist sýna verk sem mælast öll meter eða meir, sem er sameiginlegi útgangspunkturinn í verkunum, sem er í raun mótvægi við sýningu hópsins Grálist með smálist í desember 2007. þá var unnið var út frá
því að ekkert verk væri stærra en 20 cm.
Mitt framlag er verkið HÆ HÓ JIBBÍ JEI. Ísbjörninn góði sem rak á fjörur um þjóðhátíð okkar Íslendinga og tröllreið fjölmiðlum landsins, tók yfir forsíður blaða og olli miklu fjaðrafoki í þjóðfélaginu. Átti að drepa hann? Máttu blaðaljósmyndarar mynda hann? Var hann bara grænmetisæta? Áttum við að bjóða honum að borða okkur? Átti að senda hann í dýragarð í Danmörku? Var þetta nýbúi? Bangsi var felldur og líka sá næsti, en engu að síður sáust spor um allt land og hvítabirnir sáust víða bæði í vöku og draumi þetta sumarið.
Samsýningin GRÁLIST engin smá list inniheldur verk eftir listamennina Stein Kristjánsson, Karen Dúu Kristjánsdóttir, Guðrúnu Vöku, Dögg Stefánsdóttur, Sveinbjörgu Ásgeirsdóttur, Ingu Björk Harðardóttur, Herthu Richardt, Margeir Dire Sigurðsson, Sigurlín M. Grétarsdóttur, Kristínu Guðmundsdóttur, Unni Óttarsdóttur, Steinunni Ástu Eiríksdóttur, Ásu Ólafsdóttur og Dagrúnu Matthíasdóttur
18.6.08
Gestaboð Búffu
Gestaboð Búffu er málverkasýning til heiðurs Búffu búfræðings, sem er dulnefni systkinana í Alviðru á Sirrý stóru systur sem reynist sá mesti búfræðingur þegar nær er litið. Gestaboð Búffu verður á Dýrafjarðardögum í sláturhúsinu við Odda á þingeyri helgina 4.-6 júlí. Gestaboð Búffu verður formlega opnað á föstudagskvöldinu kl.22 að lokinni setningu Dýrafjarðardaga og útgáfutónleikum í Þingeyrarkirkju. Sláturhúsið og Gestaboð Búffu verður opið laugardag og sunnudag kl. 14-18.
Eru allir gestir sem streyma til Þingeyrar, víkingar, íbúar, nágrannar, ættinjar, óætt-ingjar, staðfuglar, farfuglar, innlendir sem erlendir boðnir og velkomnir að líta við.

31.5.08
SKURN - VARP
Staðfugl Farfugl samsýning í Eyjafirði var formlega opnuð í dag. Eyjafjarðarsveit skartar sínu fegursta með skemmtilegum fuglum og listaverkum eftir staðfugla og farfugla á öllum aldri.Mitt framlag er skúlptúrinn SKURN sem stendur við Öngulstaði og þátttaka í verkinu VARP sem 11 manns í Grálist - Artgroup Grálist - unnu saman.
VARP: Við í Grálist tókum flugið inn Eyjafjörð og verptum saman á varplöndunum við Torfur, Smámunasafnið og á Rifkelsstöðum. Á Rifkelsstöðum var verpt í röngu landi fyrir mistök skipuleggjenda enda verður það hreinsað í burtu með fullri virðingu fyrir öllu varpi og landareignum.
SKURN: Ég er staðfugl sem víkkaði út sjóndeildarhringinn og gerðist farfugl. Sem farfugl er ég alltaf sami staðfuglinn því hvar sem ég lendi geri ég mér hreiður. Ég brýst út úr skelinni og held á ný mið en ber samt uppruna minn með mér hvert sem ég fer.9.5.08
Á döfinni

Þá er skólinn búinn og alvara listalífsins tekin yfir að fullu. Myndlistaáfangarnir með kennaranemum og leikskólakennaranemum í HA héldu mér vel við efnið. Hlaupárshreingjörningurinn, gjörningurinn KUKL, Veggverk, DaLí Gallery, Grálist og vinnan í Gilfélaginu. Framundan í lok maí er samsýningin Staðfugl-Farfugl í eyjarfjarðarsveit. þar sýni ég skúlptúrinn SKURN og tek þátt í verkinu VARP með Grálist. Á Dýrafjarðardögum í júlí opna ég einkasýningu í gamla sláturhúsinu á Þingeyri til heiðurs Búffu búfræðings og í ágúst með samsýningahópnum Grálist í Deiglunni á Akureyri í boði Listasumars.Set inn tilkynningar jafnóðum og myndir.
7.4.08
Hlaupárshreingjörningur

Mitt framlag í Alheimsgjörningi í ár ber heitið Hlaupárshreingjörningur sem nánar er lýst:,, something was growing in my kitchen... Sá hreingjörningur fólst í því að hreingjöra það sem óx í eldhúsinu mínu allan febrúarmánuð þetta árið og hlaupa með það út í garð á hlaupársdag og urða það....and now it is growing in my garden".
Á laugardagskvöldið 12. apríl verður 4 sýningin í Alheimsgjörningi Önnu Richardsdóttur til 10 ára í bílageymslu við Norðurorku á Rangárvöllum. Þar verða framkvæmdir hreingjörningar auk þess sem myndir og verk frá hreingjörningum annarra listamanna verða þar á samsýningu.
Til hamingju Anna og takk fyrir að treysta mér til hreingjörninga.
16.1.08
,,Lífið er saltfiskur"



,,Lífið er saltfiskur”! Mér hefur alltaf þótt þetta snilldarfrasi. Allt frá því ég las bækurnar hans pabba um teiknimyndafígúruna Siggu Viggu og skildi hvorki frasann um saltfiskinn né pólitíska þráðinn í sögunum. En þótti drepfyndið að lífið gæti verið saltfiskur! Síðar á unglingsárunum vann ég í saltfiski inni á Langeyri við Álftafjörð og kynntist af eigin raun bæði saltfiskinum og striti vinnunnar í svuntu og stígvélum frá 66°norður.
Ekki nóg með að saltfiskur sé góður á bragðið og ég eigi góðar minningar um vinnu í saltfisk , þá er form sólþurrkaða saltfisksins myndrænt séð mjög flott. Frasinn ,,Lífið er saltfiskur” poppast alltaf upp öðru hvoru í umræðunni og finnst mér því tilvalið að nota form saltfisksins í myndsköpun svona rétt eftir neyslubrjálæði jólahátíðinnar á Veggverk og flytja það af einum vegg á annan yfir í DaLí Gallery og taka þar á móti skemmtilegu fólki 19. janúar kl.17.
Viðtal í 24stundum á bls.33 hér:
http://mbl.is/bladidnet/2008-01/2008-01-18.pdf
Ekki nóg með að saltfiskur sé góður á bragðið og ég eigi góðar minningar um vinnu í saltfisk , þá er form sólþurrkaða saltfisksins myndrænt séð mjög flott. Frasinn ,,Lífið er saltfiskur” poppast alltaf upp öðru hvoru í umræðunni og finnst mér því tilvalið að nota form saltfisksins í myndsköpun svona rétt eftir neyslubrjálæði jólahátíðinnar á Veggverk og flytja það af einum vegg á annan yfir í DaLí Gallery og taka þar á móti skemmtilegu fólki 19. janúar kl.17.
Viðtal í 24stundum á bls.33 hér:
http://mbl.is/bladidnet/2008-01/2008-01-18.pdf
umfjallanir: http://veggverk.org/Site/Dagr%C3%BAn_Matth%C3%ADasd%C3%B3ttir.html#6
http://veggverk.org/Site/Dagr%C3%BAn_Matth%C3%ADasd%C3%B3ttir.html#5
6.11.07
Grálist með smálist

Grálist með smálist er næsta samsýning Grálistar opnar laugardaginn 8. desember kl.14-17 í DaLí Gallery, Brekkugötu 9 á Akureyri. Þar mun Grálistahópurinn sýna smálistagjörning á myndbandi og smá listaverk sem öll eru undir 20x20 cm. Sýningin verður opin alla föstudaga og laugardaga kl.14-17 fram að jólum.
17.9.07
Vor - Súpur
Súpurnar mínar hanga nú til sýnis á Vor Café Bistro á Laugarvegi 24 í Reykjavík. Sýningin opnaði formlega á fimmtudaginn var 13. september og það var gaman að hitta fjölskyldu, vini og aðra sýningargesti í hlýlegu andrúmsloftinu á Vor. Ég fer aftur í bæinn og tek þær niður þann 11. október. Matseðillin á Vor er léttur, góður og í ódýrari kantinum og ég mæli með góða kaffinu hjá þeim.
23.8.07
Dugnaður hjá Grálist
Fólkið í GRÁLIST eru eins og gráir kettir út um allt! Steinunn Ásta opnaði sýningu í Bárubúð á Dalvík á fiskidögum sem stendur enn og Margeir Dire réðist í að graffa stóran vegg í eigu Björgúlfsfjölskyldunnar á einu húsi þeirra í Hverfisgötunni, spreyjaði listræna apaketti. Svo graffar hann á DaLí Gallery á Akureyrarvöku. Steinn vinnur á Veggverk, Steinn á stein á Akureyrarvöku og Steini verður með fiskisögur í KOM-INN á DaLí Gallery það sama kvöld. Sýning er í bígerð hjá Karen Dúu á næstunni og súpurnar mínar eru að fara í ferðalag og verða sýndar á Kaffi Vor á laugarveginum í Reykjavík. Heldnúbaraþað! Kraftur í GRÁLIST!
Subscribe to:
Posts (Atom)



